Hérna fáið þið svörin í keppninni ógurlegu.
1) Þau kysstust í fyrsta bekk (eru ekki saman
í dag)
Ég held að allir hafi hafi haft þetta rétt en þetta voru að
sjálfsögðu Friðgeir og Fjóla. Friðgeir er nú upptekin við að
hösstla í borginni samkvæmt slúðurblaðinu Hér og nú
2) Við höfum öll kúkað á nafna þessa aðila
Þetta er að sjálfsögðu Ágúst Berg en nafni hans er að
sjálfsögðu hin glæsilegu klósett Gustavsberg. Við höfum einmitt öll
kúkað í þannig klósett og skilið eftir myndarlegt
bremsufar (líka stelpurnar)
3) Bekkjarfélagi okkar heitir það sama og þessi alþjóðlega
stjarna (spilar á bæði mörkin ef þið vitið hvað ég
meina
Hérna er rétt svar Dana í höfuðið á Dönu International. Kom
á óvart að Dana sjálf skildi ekki hafa áttað sig á nöfnu sinni en
þessar 2 manneskjur þykja einmitt mjög líkar. Og þetta með að spila
á bæði mörkin er smá orðaleikur sem sum ykkar skilja og önnur
ekki
4) Vex á trjám?
Svarið er Alli Lauf af augljósum ástæðum.
5) Sagði í 10 bekk að hann myndi frekar runka sér yfir flottum
bíl heldur en klámmynd
Það var held ég engin með þetta svar rétt en það var
glaumgosinn Águst Guðmundsson sem sagði þetta. Mig grunaði einmitt
að flestir mynu giska á aðal bílakalla bekkjarins þá Róbert og
Leif. Mig grunar reyndar að Ágúst muni ekki eftir þessu en þetta er
dagsatt. Þetta hefur hins vegar breyst og er Ágúst nú á fullu allar
helgar og bara tímaspursmál hvenær lítill Ágúst kemur í
heimin.
6) Hefur haft kynmök með þýskum leðurhomma (nánast
staðfest
Þetta er hún litla saklausa Tinna sem bjó í
Austurríki um tíma og stundaði hún margt svæsið á þeim tíma
Ekki
taka mark á því þó Tinna þræti fyrir þetta því hún sagði mér þetta
á einu fylliríi.
7) Verslar einungis í barnadeild Hagkaups
Þetta er líka Tinna en hún er þó oftast snyrtilega
klædd enda hafa smábörn orð á sér fyrir að vera sæt í litlu
barnafötunum sínum;9
Hver sagði hvað um og um hvern? Gerðist í göngutúr á
skólagarðinum "Vá sjáiði hvað þessi er flott"
Þetta var glæsimennið Friðgeir sem sgaði þetta um hina
gullfallegu Þórhöllu (amma mín) þegar við vorum í göngutúr á
skolagarðinum. Það sá hann ömmu vera á brjóstahaldaranum að vökva
blómin og kallaði í Sigga Valla (ekki gáfulegt hjá Friðgeir að
kalla í Sigga) og sýndi honum þetta babe
9) Hver lét strákana koma blóðuga heim á hálsinum nánast
daglega í 3-7 bekk
Fríða var stórhættuleg á þessum árum þegar hún klemmdi
neglunum sínum utan um hálsin á okkur strákunum þangað til blóðið
lak niður undir bolinn hjá manni. Ég fæ enn martraðir útaf
þessu.
10) Hver átti flottustu íþróttabuxurnar og hvaða buxur voru
það?
Ótrúlegt að Helga hafi ekki svarað þessu rétt. Hérna er
svarið Helga Dögg og erum við að tala um hinar gullfallegu lotto
buxur. Var ástandið svo slæmt á tímabili að ég hélt að buxurnar
hefðu vaxið á Helgu og hún kæmist bara hreinlega ekki úr
þeim.
11) Hver var bestur í vasabilliard
Siggi Valli á þennan titill skuldlaust enda sá eini í þessum
árgang sem hefur verið rekin úr tíma fyrir að leika sér með
félagann
Ótrúlegt hvað ég fékk hins vegar mörg atkvæði í þessari
spurningu.
12) Hver úr árgang 85 er sköllóttur í dag?
Þetta er Halli Sig sem missti hárið fljótlega eftir að 10
bekk lauk. Hafa þær spurningar vaknað meðal fólks að Haraldur sé í
raun 30 ára en ekki 21 eins allir halda. Mun það vera
skýringin á því hvers vegna Haraldur var alltaf mun fullorðinslegri
en við í yngri bekkjum. Ekki er vitað um mikið fleiri í heiminu sem
misst hafa hárið 16 ára gamlir.
13) Kláraði öll eplin sem áttu að vera í salatinu í
matreiðslu á meðan hann var að skera þau, við litla hrifningu
Steinunnar.
Þetta var hinn mikli matmaður Guðmundur sem gleymdi sér
aðeins á meðan hann var að skera eplin og setti þau öll uppí sig í
staðin fyrir að stja þau á disk handa öðrum
14) Er með stórhættulegan smitandi hlátur
Auðvitað er þetta Kata einsog held ég allir svöruðu. Kötu
kitlar einmitt sérstaklega mikið á hnjánum sem er mjög spes. Maður
hló einmitt oft bara að því að Kata var að hlæja þó maður vissi
ekkert um hvað málið snerist
15) Egypti
Þetta er Mikki Ungverji sem var var einmitt oft
kallaður Diddi egypti eftir að Baldvin Hallgrím ruglaðist aðeins á
nöfnum
16) Tók gannislag við Kollu kennara í 10 bekkjarferðalaginu og
vann sannfærandi (samt var Kolla að lyfta á fullu í Skokka á
þessum tíma
Það var Halli sem vann Kollu í þessum slag tvívegis. Þetta
byrjaði sem gannislagur en endaði með mikilli baráttu. Eftir að
Halli hafði snúið Kollu niður í fyrra skiptið stóð Kolla upp fór úr
peysunni og tók af sér skartgripi og sagði "nú er þetta alvöru
Halli". Eftir 10 sekúndur lá Kolla samt aftur í gólfinu eldrauð af
reiði
17) Hvaða strákur tapaði fyrir Fríðu í sjómann í 9 bekk
Þetta var Ágúst Berg. Ég varð vitni af þessum slag og tók ég
eftir því að þetta virkaði nokkuð auðvelt hjá Fríðu á meðan æðarnar
á enninu á Ágústi spruttu fram af ofreynslu. Vill ég gjarnan
að þessi sjómann verði endurtekinn við tækifæri
1
Hvaða drykk auglýsti ég á pennaveskinu mínu nánast alla
mína skólagöngu
Ég auglýsti Pepsi Max og virkaði það líka svona ljómandi vel
og hefur sala á Pepsi Max aldrei verið betri. Enda takiði eftir því
að nú er endalust verið að auglýsa Pepsi Max enda er ég ekki lengur
í skóla að auglýsa og hefur salan verið sífellt farið minnkandi
eftir að ég hætti í skóla
19) Grýla
Þetta er Biggi og er ástæðan að sjálfsögðu sú að mamma hans
var í Grýlunum. Hins vegar komu nokkur skemmtileg gisk
þarna
20) Hvaða deild vann popppottinn????????
Það er óumdeilanlegt að það var mín deild sem vann þetta
popp dót! þetta verður ekki rætt frekar.
Þetta eru svörin og ekki hægt að þræta um þau hér að neðan koma
svo stigin og er kærufrestur til 20.08.2006 kl 23:59.
Siggi Valli 15
stig,
Anna Heba 14 stig (klikkaði á þessum með
poppið
Fríða og Kiddý með 13
stig
Helga Dögg
12
Anna Björg
10
Dana og Ágúst Berg
9
Kjartan og Kata
7
Gísli og Tinna 6 Vissi að Gísli myndi ekki vinna
Til hamingju Siggi þú hefur unnið þér inn dekurdag hjá mér
Ég
biðst afsökunar ef ég hef talið vitlaust er bara orðin svo þreyttur
á þvi að skrifa þetta allt saman og telja þessi stig. Takk fyrir
þáttökuna þið stóðuð ykkur flest mjög vel